Eldum heima

Það er hagkvæmt, hollt og gott að elda heima. Þegar þú eldar matinn þinn þá veistu nákvæmlega hvað fer ofan í þig. Heimagerður matur getur bragðast mjög vel og er oftast ódýrari. Njóttu þess að elda heima fyrir þig og þína.

Notaðu fersk hráefni og hreinar vörur
Til að búa til hollan og góðan mat þarf góð hráefni. Láttu eftir þér að kaupa ferskar og hreinar matvörur og reyndu að sneiða hjá unnum matvörum.

Þetta þarf ekki að vera flókið
Það er t.d. mjög einfalt að elda mat þar sem allt fer í einn pott s.s súpur og pottrétti. Í súpur og pottrétti er hægt að nota alls konar grænmeti, kjöt, fisk og baunir. Svo er hægt að bæta við hnetum, fræjum, ávöxtum, þurrkuðum ávöxtum, kryddjurtum og kryddum.

Eldaðu í stórum skömmtum
Ef þú eldar í stórum skömmtum getur þú sparað þér tíma og peninga. Búðu til meira en þú þarft fyrir eina máltíð og geymdu afgang til næsta dags eða settu í frysti.

Prófaðu eitthvað nýtt í hverri viku
Prófaðu nýja uppskrift, nýtt grænmeti, nýja fisktegund, framandi ávexti, öðruvísi baunir, nýtt krydd eða bara eitthvað nýtt í hverri viku. Á endanum muntu detta niður á eitthvað sem þér og þínum mun líka mjög vel við og verður kannski í uppáhaldi.

Sparaðu tíma
Það er líklegt að stundum þurfum við að spara okkur tíma.

  • Þú getur keypt tilbúinn hreinan kjúkling í bitum til að setja í súpur, salöt og pottrétti.
  • Þú getur keypt þér grænmeti og ávexti í áskrift til að tryggja fjölbreytileika og að alltaf sé til nóg.
  • Vertu viss um að eiga nóg af hollu meðlæti sem geymist vel, s.s. hýðishrísgrjón, kínóa, bygg, perlubygg og heilkorna pasta.
  • Vertu viss um að eiga nóg af hollum dósamat ef þú þarft að grípa í s.s. niðursoðnar baunir, tómata og kókosmjólk.

Hugsaðu fram í tímann
Hugsaðu fyrir máltíðum næsta dags eða næstu daga því þannig getur þú með fyrirhyggju sparað tíma og peninga t.d. með því að leggja baunir í bleyti og sjóða heima.

Hér eru hugmyndir að kvöldmat fyrir alla fjölskylduna þar sem allt fer í einn pott!

Ítalskur pottréttur

Franskur lambapottréttur með tímían

Chili Sin Carne af bestu gerð


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading