Ofnbökuð dásemd
Eggjakaka með gulrótum
Fjöldi skammta
1
Innihald
200 g gulrætur
2 egg
1 msk estragon
50 g léttmál grísk jógúrt eða sýrður rjómi 10%
Salt og pipar
Leiðbeiningar
- Setjið vatn í pott og látið suðuna koma upp
- Kveikið á ofninum, stillið á 180 C° hita
- Skerið gulrætur í bita og setjið í sjóðandi vatn eða gufusjóðið
- Sjóðið í nokkrar mínútur en passið að gulræturnar séu enn stökkar
- Hellið vatninu af
- Þeytið egg og gríska jógúrt saman
- Kryddið með estragoni, salti og pipar
- Setjið gulrætur í eldfast fat og hellið eggjablöndunni yfir
- Setjið í 180 C°heitan ofn og bakið í u.þ.b. 30 mínútur eða þar til eggjakakan er bökuð í gegn
Góð ráð
- Hægt er nota blómkál eða spergilkál í staðinn fyrir gulrætur.
- Það má nota annað krydd , t.d. órigano.
- Gott að bera fram með góðu salati, t.d. grænmetissalsa með límónu og kóríander.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

