Ljúffengur og einfaldur ofnréttur
Bökuð sellerírót með kotasælu
Fjöldi skammta
1
Innihald
200 g sellerírót
1 egg
75 g kotasæla
10 g möndlumjöl
5 g fersk steinselja
10 g majónes
Salt og pipar
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 180° C.
- Afhýðið sellerírót og rífið niður.
- Blandið saman rifinni sellerírót, kotasælu, eggi, majónesi, möndlumjöli og steinselju.
- Kryddið með salti og pipar.
- Setjið í eldfast mót og bakið við 200° C í u.þ.b. 30 mínútur.
Góð ráð
- Gott að borða með grófu brauði og grænusalati.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

