Ferskur og sumarlegur réttur
Grillaður fiskur með límónu og chile pipar
Fjöldi skammta
1
Ferskur og sumarlegur fiskréttur
Innihald
100 g skötuselur
70 g risarækjur eða humar
100 g kirsuberjatómatar
- Marínering
0,5 límóna (safinn)
0,5 stk chile pipar, smátt saxaður
1 tsk ólívuolía
Leiðbeiningar
- Leggið grillspjót í bleyti, ef notuð eru tréspjót.
- Blandið saman límónusafa, chile pipar og ólívuolíu.
- Skerið skötusel í munnbita.
- Setjið skötusel og rækjur í maríneringu í u.þ.b. 2 tíma. Geymið í ísskáp.
- Setjið fisk og tómata á grillspjót.
- Grillið á grillpönnu eða útigrilli.
Góð ráð
- Gott að bera fram með límónubátum og kreista smá límónusafa yfir fiskinn
- Sellerí- og mangósalat passar vel með þessum rétti
- Mangósósa passar vel með þessum rétti
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

