Fljótleg og holl
Pastasósa
Fjöldi skammta
2
Innihald
Olía til steikingar
3 vorlaukar
200 g kúrbítur
2 hvítlauksrif
200 g vel þroskaðir tómatar
150 g Philadelphia Light rjómaostur
10 g fersk basilíka
20 g tómatpúrra
50 g parmesan ostur (rifinn)
Salt og svartur pipar
Leiðbeiningar
- Hitið olíu á pönnu á miðlungshita
- Skerið vorlauk í sneiðar og mýkið á pönnunni
- Rífið kúrbít á grófu rifjárni og bætið á pönnuna
- Pressið hvítlauksrif og bætið á pönnuna
- Saxið tómata gróft og bætið á pönnuna
- Bætið rjómaosti og tómatpúrru á pönnuna
- Blandið vel saman og leyfið að malla í nokkrar mínútur
- Saxið basilíku smátt og bætið á pönnuna
- Smakkið til með salti og svörtum pipar
- Þegar rétturinn er borinn fram er ferskur parmesan ostur rifinn yfir
Góð ráð
- Góð ein og sér eða með pasta, fiski eða kjöti.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

