Ferskt og mjög fljótlegt
Ofureinföld salatskál
Fjöldi skammta
1
Innihald
100 g tómatar
100 g agúrka
75 g kotasæla
40 g skinka, t.d. pestóskinka merkt græna skráargatinu
10 g basilolía, t.d. frá Nicholas Vahe
Leiðbeiningar
- Skerið tómata og agúrku í litla bita
- Skerið skinkusneiðar í litla bita
- Blandið saman grænmeti, skinkubitum og kotasælu
- Hellið olíunni yfir
Góð ráð
- Það þarf ekki alltaf að vera flókið að skella í holla máltíð.
- Gott að borða brauð með þessu.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

