Lambalundir með eplum og appelsínum

0.0 from 0 votes

Sumarlegur og sjúklega góður lambakjötsréttur

Lambalundir með eplum og appelsínum

Lambalundir með eplum og appelsínum

0.0 from 0 votes
Fjöldi skammta

3

Innihald

  • 120 g laukur

  • 300 g fennel

  • 1 msk sætt karrý

  • 1 msk garam masala

  • 510 g lambalundir í bitum

  • 3 rif hvítlaukur

  • 400 g tómatar í dós

  • 60 g tómatmauk (tomato puree)

  • 150 ml vatn

  • 1 tsk salt

  • 2 epli

  • 1 appelsína/ur

  • 30 g rúsínur

  • Salt og pipar

  • Olía til steikingar

Leiðbeiningar

  • Saxið lauk og fennel frekar smátt og mýkið við vægan hita í olíu á stórri pönnu eða í potti. Þetta á ekki að brúnast, bara mýkjast í svona 10 mínútur.
  • Bætið karrý og garam masala og mýkið áfram í 1-2 mínútur.
  • Bætið tómötum, tómatmauki, vatni, rúsínum og salti á pönnuna.
  • Skerið epli í litla bita og appelsínu í þunnar sneiðar (með berkinum) og bætið á pönnuna.
  • Steikið lambakjötið í olíu á annarri pönnu og pressið hvítlauk yfir ásamt salti og pipar.
  • Bætið lambakjötinu út á hina pönnuna.
  • Leyfið þessu að malla í 50-60 mínútur en hrærið í annars lagið.
  • Smakkið og bætið við salti, pipar eða karrýi.

Góð ráð

  • Gott að bera fram með soðnu perlubyggi og spínatsalati.
  • Ég nota alltaf lífrænt ræktuð epli og appelsínur í þennan rétt. Hér erum við að borða eplahýði og appelsínubörk og þá er mikilvægt að vera viss um að gæðin séu í lagi.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Chili sin Carne af bestu gerð

Chili sin Carne af bestu gerð

Notalegur grænmetispottréttur á köldu kvöldi

Ítalskur pottréttur

Ítalskur pottréttur

Ferskur og góður pottréttur


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading