Kjúklinga-lasagna með spínati og ferskri basilíku

0.0 from 0 votes

Ekkert hveiti, sellerírrót notuð sem lasagnablöð

Kjúklingalasagna með ferskri basilíku

Kjúklingalasagna með ferskri basilíku

0.0 from 0 votes
Fjöldi skammta

8

Það tekur smá tíma að elda þennan frábæra rétt en verðlaunin eru góð.

Innihald

  • Kjúklingurinn
  • 1 heill kjúklingur

  • Eldpiparduft (Chíle-pipar)

  • Salt og pipar

  • 6 hvítlauksrif

  • Lasagna blöðin
  • 400 g sellerírót

  • Sósan
  • 6 stk vorlaukur

  • 1 chíle-pipar

  • 6 hvítlauksrif

  • 800 g tómatar úr dós

  • 200 g rjómaostur

  • 250 g sýrður rjómi 10%

  • 75 g parmesan ostur, rifinn

  • 25 g fersk basilíka

  • Salt og pipar

  • Olía til steikingar

  • Samsetningin
  • Lasagna blöðin (sellerírótin)

  • 500 g kjúklingakjöt, eldað

  • 120 g ferskt spínat

  • 25 g fersk basilíka

  • Sósan

  • 75 g rifinn ostur

Leiðbeiningar

  • Kjúklingurinn, best að byrja á því að elda hann
  • Kveikið á ofninum, stillið á 170°C.
  • Setjið kjúklinginn í eldfast mót
  • Kryddið kjúklinginn vel með salti, pipar og chíle-pipar
  • Eldið í ofni þar til kjarnhiti hefur náð meira en 70°C. Tekur um 45-60 mínútur.
  • Takið kjúklinginn út og leyfið honum að kólna þannig að þið getið snert hann með höndunum.
  • Rífið kjúklinginn niður í litla bita.
  • Takið soðið úr eldfasta mótinu og hellið því í pott og hitið upp að suðu.
  • Bætið pressuðum hvítlauk út í soðið og leyfið að malla í nokkrar mínútur.
  • Hellið soðinu yfir kjúklingabitana og leyfið þessu að bíða í smá stund. Má alveg geyma til næsta dags í ísskáp ef ætlunin er að elda lasagna daginn eftir.
  • Lasagna blöðin
  • Afhýðið sellerírót, skerið í örþunnar sneiðar og bregðið í sjóðandi vatn. 
  • Hellið vatninu frá og geymið.
  • Sósan
  • Saxið vorlauk smátt og mýkið upp úr olíu á pönnu við meðalhita. Laukurinn á ekki að steikjast, bara mýkjast rólega í olíunni.
  • Saxið chili-pipar smátt og bætið á pönnuna.
  • Pressið hvítlauk eða saxið smátt og bætið á pönnuna.
  • Bætið tómötum úr dós, rjómaosti og sýrðum rjóma á pönnuna.
  • Bætið rifnum parmesan osti út á pönnuna
  • Leyfið þessu að blandast vel og malla í nokkrar mínútur.
  • Saxið basiliku smátt og bætið út í sósuna.
  • Smakkið og kryddið með salti og pipar
  • Samsetningin, lokaskrefin
  • Stillið ofninn á 180°C
  • Setjið til skiptis í eldfast mót: 1) blöndu af ferskum basilíkublöðum og ferskum spínatblöðum 2) sellerírótarsneiðarnar 3) kjúklinginn 4) sósuna. Það fer eftir stærð fatsins hversu mörg lögin verða.
  • Stráið að lokum rifna ostinum yfir og bakið í ofni við 180°C í 20-25 mínútur.
  • Takið út úr ofninum þegar osturinn er orðinn fallega bráðinn.
  • Berið fram með grænu góðu salati, t.d. salati með jarðarberjum og furuhnetum.

Góð ráð

  • Mæli með því að nota alltaf kjöthitamæli þegar verið er að elda kjúkling og annað kjöt. Of eldaður kjúklingur getur orðið þurr.
  • Það má nota rjóma eða matreiðslurjóma í staðinn fyrir sýrðan rjóma ef ekki er verið að spá í orkuinnihald og fitu. Það bragðast líka mjög vel.
  • Gott að bera fram með rifnum parmesan osti.
  • Það má að sjálfsögðu nota venjulegar lasagne plötur í staðinn fyrir sellerírót.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Chili sin Carne af bestu gerð

Chili sin Carne af bestu gerð

Notalegur grænmetispottréttur á köldu kvöldi

Ítalskur pottréttur

Ítalskur pottréttur

Ferskur og góður pottréttur


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading