Ekkert brauð, bara sætar kartöflur, fullt af grænmeti, egg og hollar sósur
Hollur hamborgari
Fjöldi skammta
1
Innihald
1 hamborgari úr hreinu nautahakki 100-120 g
1 egg
50 g tómatar í sneiðum
50 g agúrka í sneiðum
40 g blandað salat
60 g paprika í sneiðum
- Kokteilsósa
50 g sýrður rjómi 10%
10 g tómatsósa
eldpiparduft (chíle-pipar)
- Lárperumauk
0,5 lárpera (avocado)
0,5 límóna (safinn)
0,25 tsk salt
Leiðbeiningar
- Skerið grænmeti og útbúið sósur.
- Búið til hamborgara úr hreinu nautahakki.
- Kryddið með salti og pipar
- Grillið hamborgara á vel heitu grilli. Snúið hamborgaranum þegar kjötsafinn kemur upp, u.þ.b. 2 mínútur á hvorri hlið.
- Spælið egg.
- Berið fram með 100 g af sætum kartöflusneiðum.

- Lárperumauk
- Fjarlægið hýði og stein og setjið lárperurnar í blandara.
- Kreistið safa úr einni sítrónu saman við.
- Bætið við salti.
- Maukið.
- Kokteilsósa
- Blandið saman sýrðum rjóma og tómatsósu og hrærið vel með gaffli.
- Kryddið með Chíle-pipar kryddi.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

