Samsetning sem kemur skemmtilega á óvart!
Píta með rifnum gulrótum, osti og sítrónuolíu
Fjöldi skammta
1
Brakandi ferskt og gott. Sítrónuolían gerir galdurinn!
Innihald
60 gr gróft pítubrauð
200 g gulrætur
50 g salatostur (Ostakubbur)
15 g sítrónuolía, t.d. frá Rapunzel
Leiðbeiningar
- Gulrætur rifnar niður
- Salatostur skorinn smátt eða rifinn og blandað saman við gulrætur
- Sítrónuolíu er hellt yfir og blandað saman
- Hitið pítubrauðið í brauðrist
- Setjið gulrótablönduna ofan í pítuna
Góð ráð
- Hér mætti líka nota annað rifið grænmeti, s.s. fennel eða nípu og blanda við gulræturnar.
- Gott að bæta við smá grænu blaðgrænmeti.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

