Hollt og gott – án viðbætts sykurs
Granóla með möndlum og kanil
Þetta heimagerða granóla er náttúrulega sætt með döðlum og fullt af góðri næringu úr höfrum, fræjum og möndlum. Góður kostur í morgunmat eða millimál, t.d. sem brakandi stökkt kurl ofan á gríska jógúrt.
Innihald
250 g tröllahafrar
120 g döðlur
180 ml vatn (þarf mögulega aðeins meira)
75 g fræ að eigin vali, t.d. graskersfræ, sólblómafræ
75 g grófsaxaðar möndlur með hýði
1 msk kanill (Ceylon)
0,25 tsk salt
Leiðbeiningar
- Fjarlægið steina úr döðlum og saxið gróft
- Setjið vatn og döðlur í pott og hitið upp að suðu
- Hafið lágan hita á pottinum og maukið saman döðlur og vatn
- Þegar komið er döðlumauk er slökkt undir pottinum og maukið látið bíða í smá stund
- Kveikið á ofninum og stillið á 180° C
- Blandið saman í stóra skál tröllahöfðum, grófsöxuðum möndlum, fræjum, kanil og salti.
- Bætið döðlumaukinu út í og blandið vel saman
- Leggið bökunarpappír í ofnskúffu og dreifið úr blöndunni í ofnskúffuna
- Bakið í u.þ.b. 30 mínútur en hrærið í blöndunni á 5-10 mínútna fresti svo hún brenni ekki.
- Látið kólna og setjið svo í stóra krukku með góðu loki.
Góð ráð
- Frábært með grískri jógúrt og ávöxtum.
- Ceylon kanill inniheldur miklu minna af efninu kúmarín en hefðbundinn kanill (Cassia). Kúmarín getur verið skaðlegt fyrir lifrina ef þess er neytt í of miklu magni. Ceylon kanill er líka bragðmeiri, betri og oftast meiri gæðavara en hinn hefðbundni kanill (Cassia). Það er því öruggara að skipta alveg yfir í Ceylon kanil, sérstaklega fyrir þá sem borða mikið af kanil.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

