Grænt salat með kjúklingabaunum

0.0 from 0 votes

Frábært í hádegisnestið

Grænt salat með kjúklingabaunum

Grænt salat með kjúklingabaunum

0.0 from 0 votes
Fjöldi skammta

1

Innihald

  • 100 g kjúklingabaunir, soðnar

  • 160 g spergilkál, soðið

  • 40 g grænkál

  • 20 g rauðlaukur

  • 1 grænt epli, lífrænt ræktað

  • 10 g rúsínur

  • 5 g möndlur

  • Salatsósa
  • 15 ml ólívuolía

  • 1 msk sítrónusafi

  • 1 msk balsamik edik

  • 0,25 tsk kanill (Ceylon)

  • Salt og pipar

Leiðbeiningar

  • Ef sjóða á kjúklingabaunir þarf fyrst að leggja þær í bleyti í a.m.k. 12 klukkustundir. Síðan þarf að skipta um vatn og sjóða í 60-90 mínútur.
  • Ef notaðar eru tilbúnar kjúklingabaunir úr dós eða krukku þarf bara að hella safanum af.
  • Sjóðið eða gufusjóðið spergilkál í nokkrar mínútur, kælið.
  • Skerið eða rífið grænkálið í hæfilega bita.
  • Saxið rauðlauk frekar smátt.
  • Skerið epli í litla bita.
  • Saxið möndlur gróft
  • Blandið öllu saman í skál.
  • Blandið saman öllu sem á að vera í salatsósunni og hellið yfir salatið.

Góð ráð

  • Það er hægt að nota græna papriku í staðinn fyrir rauðlauk.
  • Það er gott að setja rauðlaukinn í kalt vatn eftir að búið er að skera hann niður og láta hann standa þar meðan salatið er útbúið. Það mildar svolítið bragðið þannig að laukurinn yfirtaki ekki annað bragð.
  • Það er gott að leggja möndlur og rúsínur í bleyti yfir nótt. Þannig verða þær auðmeltanlegri og jafnvel enn betri á bragðið.
  • Ceylon kanill inniheldur miklu minna af efninu kúmarín en hefðbundinn kanill (Cassia). Kúmarín getur verið skaðlegt fyrir lifrina ef þess er neytt í of miklu magni. Ceylon kanill er líka bragðmeiri, betri og oftast meiri gæðavara en hinn hefðbundni kanill (Cassia). Það er því öruggara að skipta alveg yfir í Ceylon kanil, sérstaklega fyrir þá sem borða mikið af kanil.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


1 thought on “Grænt salat með kjúklingabaunum”

Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading