Ferskt, gott og fljótlegt
Grænn aspas með salatosti
Fjöldi skammta
1
Aspas með sítrónuberki og parmesan osti
Innihald
200 g ferskur grænn aspas
0,5 sítróna börkur (ysta lagið)
1 tsk ólívuolía
50 g salatostur
0,5 tsk salt
Leiðbeiningar
- Skolið aspasinn og brjótið neðsta hlutann af stilknum. Með því að brjóta af stilknum frekar en að skera þá brotnar stilkurinn akkúrat þar sem hann á að brotna.
- Hitið olíu á pönnu á miðlungshita.
- Veltið aspasnum upp úr olíunni og steikið í nokkrar mínútur.
- Þegar aspasinn er alveg að verða tilbúinn, stráið þá salti yfir og setjið síðan á disk.
- Skerið salatost í litla bita og dreifið yfir aspasinn.
- Rífið að lokum sítrónubörk yfir.
Góð ráð og fróðleikur
- Gott að borða súrdeigsbrauð með smjöri eða ólívuolíu með.
- Aspas er fáanlegur allt árið um kring en á vorin er hann bestur. Uppskerutíminn er frá lok febrúar til júní, en apríl er besti tíminn.
- Einn skammtur passar sem létt máltíð fyrir einn en getur líka verið forréttur fyrir u.þ.b. fjóra.
Góður kostur er á Instagram
Góður kostur er hér @godur_kostur og notar myllumerkið #godurkostur
Góður kostur er með Facebook síðu
Þú finnur síðuna hér Góður kostur


1 thought on “Grænn aspas með salatosti”