Einstaklega einföld og ljúffeng súpa
Blaðlaukssúpa með kartöflum og sýrðum rjóma
Fjöldi skammta
1
Innihald
100 g blaðlaukur
100 g kartöflur
5 g grænmetiskraftur
500 ml vatn
100 g sýrður rjómi 10%
Ferskt eða þurrkað tímían
Salt og pipar
Leiðbeiningar
- Skerið blaðlauk í sneiðar
- Skerið kartöflur í bita
- Setjið vatn, karöflur, blaðlauk, grænmetiskraft og tímían í pott og sjóðið þar til kartöflur eru mjúkar
- Bætið sýrðum rjóma saman við og maukið með töfrasprota eða í blandara
- Smakkið til með salti og pipar
Góð ráð og fróðleikur
- Gott að borða með grófu brauði, osti, gúrkum og grænni papriku.
Góður kostur er á Instagram
Góður kostur er hér @godur_kostur og notar myllumerkið #godurkostur
Góður kostur er með Facebook síðu
Þú finnur síðuna hér Góður kostur

