Lambalæri með indversku ívafi

0.0 from 0 votes

Veislumatur sem bragð er af

Lambalæri með indversku ívafi

Lambalæri með indversku ívafi

0.0 from 0 votes
Fjöldi skammta

8

Innihald

  • 1 lambalæri með beini (um 2,5 kg)

  • 12 hvítlauksrif

  • 1 msk ólívuolía

  • Kryddlögur
  • 50 g engiferrót, rifin

  • 140 g tómatpúrra

  • 1 tsk kanill

  • 300 ml hrein jógúrt

  • 0,5 tsk kardimommuduft

  • 1 tsk cumin

  • 4 msk karrý

  • 1 msk túrmerik

  • 1 msk garam masala

  • 1 tsk kóríander duft

  • 1,5 msk salt

  • Svartur pipar

  • 2 laukar, smátt skornir

  • 1 eldpipar (chíle-pipar), smátt skorinn

Leiðbeiningar

  • Stingið 12 göt á lærið og setjið heil hvítlauksrif í götin. Nuddið lærið með u.þ.b. 1 msk af ólívuolíu.
  • Blandið öllu sem á að fara í kryddlöginn.
  • Setjið lærið í plastpoka ásamt kryddleginum og látið bíða í ísskáp í u.þ.b. 24 tíma. Passið að kryddlögurinn þeki vel allt lærið.
  • Setjið lærið ásamt öllum kryddleginum í ofnpott og lokið ofan á.
  • Hægeldið í ofni við 80-90°C í u.þ.b. 6 tíma. Hafið kjöthitamæli í lærinu.
  • Þegar lærið er hefur náð 60°C kjarnhita er gott að taka lokið af pottinum og stilla ofninn á 200° C hita.
  • Lærið er eldað þannig áfram í u.þ.b. 10-15 mínútur eða þar til það er orðið dökkt, stökkt og kjarnhiti um 65°C. 
  • Takið kjötið út úr ofninum og leyfið því að bíða í 10-15 mínútur áður en það er skorið og borið fram.

Góð ráð

  • Berið fram með góðri sósu, salati, hýðishrísgrjónum og ef til vill Naan brauði.
  • KÖLD SÓSA
    Raita sósa passar einstaklega vel með þessu ljúffenga læri.
  • HEIT SÓSA
    Ef þú vilt hafa heita sósu þá er afgangurinn af kryddleginum tekinn úr ofnpottinum og settur í pott með 200 g af smjöri. Síðan má bæta við 500 ml matreiðslurjóma. Að lokum má bæta smá rauðvíni út í og smakka til með salti og pipar. Þessi sósa er sjúklega góð en mjög orkurík og flokkast sem veislukostur.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum

Chili sin Carne af bestu gerð

Chili sin Carne af bestu gerð

Notalegur grænmetispottréttur á köldu kvöldi


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading