Geggjað grænkálssnakk

5.0 from 1 vote

Stökkt og gott heilsusnakk

Geggjað grænkálssnakk

Geggjað grænkálssnakk

5.0 from 1 vote
Fjöldi skammta

1

Innihald

  • 50 g grænkálsblöð

  • 30 g kasjúhnetur (þarf að leggja í bleyti í 2-3 tíma)

  • 10 g ólívuolía

  • 5 g næringarger

  • 0,5 tsk túrmerik

  • 0,25 tsk eldpiparflögur (chíle-pipar)

  • 80 ml vatn (getur þurft aðeins minna eða aðeins meira)

  • Smá salt

Leiðbeiningar

  • Leggið kasjúhnetur í bleyti í vatn í 2-3 tíma
  • Skolið og þerrið grænkálið.
  • Rífið grænkálsblöðin í passlega bita, bara blöðin eru notuð, ekki stilkarnir.
  • Hellið vatninu af kasjúhnetunum.
  • Hitið ofninn í 160° C.
  • Blandið saman kasjúhnetum, vatni, olíu, næringargeri og kryddum í matvinnsluvél eða blandara. Byrjið bara á setja um helming af vatninu og bætið svo meira vatni ef þarf. Blandan á bara að vera það þunn að hún nái að blandast vel saman en ekki það þunn að hún renni of vel.
  • Bætið við smá salti ef þarf.
  • Setjið kasjúhnetublönduna yfir grænkálið og veltið því vel upp úr blöndunni þannig að blöðin séu vel þakin.
  • Raðið grænkálinu á bökunarplötu með bökunarpappír. Einn skammtur passar á eina plötu.
  • Bakið í ofni við 160° C í 20-25 mínútur. Fylgist vel með og passið að brenni ekki.

Góð ráð

  • Hér er hægt að leika sér með kryddin og velja önnur. Hvítlauksduft, laukduft og paprika passa líka mjög vel.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Chili sin Carne af bestu gerð

Chili sin Carne af bestu gerð

Notalegur grænmetispottréttur á köldu kvöldi

Sólblómafræ ristuð með tamarisósu

Sólblómafræ ristuð með tamarisósu

Góð út á salat eða sem snakk


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading