Pólýfenól

Hvað eru pólýfenól?

Pólýfenól eru plöntuefnasambönd með ýmis konar heilsufarslegan ávinning. Pólýfenól eru í fæðu úr plönturíkinu s.s. ávöxtum, grænmeti, kryddjurtum, kryddi, tei, dökku súkkulaði og víni.

Þau geta virkað sem andoxunarefni, sem þýðir að þau geta hlutleyst skaðleg sindurefni sem annars myndu skaða frumurnar þínar og auka hættuna á sjúkdómum eins og krabbameini, sykursýki og hjartasjúkdómum.

Pólýfenól eru einnig talin draga úr bólgu, sem er talin vera undirrót margra langvinnra sjúkdóma.

Tegundir pólýfenóla

Meira en 8.000 tegundir af pólýfenólum hafa fundist en hægt er að flokka þau frekar í 4 flokka.

  • Flavonoids sem finnast t.d.  í eplum, lauk, dökku súkkulaði og rauðkáli.
  • Fenólsýrur sem finnast aðallega í ávöxtum, grænmeti, heilkorni og fræjum.
  • Pólýfenólamíð sem finnast í eldpipar (chili) og höfrum.
  • Önnur pólýfenól finnast einnig í rauðvíni, berjum, túrmerik, hörfræjum, sesamfræjum og heilkorni.

Magn og tegund pólýfenóla í matvælum fer eftir uppruna, þroska og hvernig matvælin voru ræktuð, flutt, geymd og útbúin.

Fæðubótarefni sem innihalda pólýfenól eru einnig fáanleg en líklega eru þau ekki eins gagnleg og matvæli sem eru rík af pólýfenólum.


1 thought on “Pólýfenól”

Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading