Site icon GÓÐUR KOSTUR

Kalt fiskisalat

Kalt fiskisalat

Gott með grófu, þéttu brauði, t.d. sólkjarnabrauði

Kalt fiskisalat

Kalt fiskisalat

Recipe rating: N/A
Fjöldi skammta

1

    Hér er hægt að nýta afganga af köldum fiski.

    Innihald

    • 120 g kaldur soðinn fiskur, t.d. þorskur eða ýsa

    • 2 stk litlar sýrðar agúrkur án sykurs

    • 1 msk kapers

    • 20 g létt majónes

    • 100 g sýrður rjómi

    • 1 tsk sítrónusafi

    • 1 tsk dijon sinnep

    • salt og pipar

    • steinselja eða kóríander ofan á

    Leiðbeiningar

    • Skerið fisk og agúrku í litla bita
    • Hrærið saman í sósu; létt majónesi, sýrðum rjóma, sítrónusafa og sinnepi
    • Blandið saman sósu, fiski, agúrkum og kapers
    • Bragðbætið með salt og pipar
    • Látið bíða í kæli í 1/2 til 1 klukkustund
    • Berið fram fram með brauði og skreytið með steinselju eða kóríander.

    Góð ráð

    • Bragðast vel með grófu þéttu brauði, s.s. maltbrauði eða rúgbrauði. Gott að hafa meira af sýrðum agúrkum sem meðlæti.
    • Bökuð rauðrófa sem búið er að skera í teninga passar mjög vel með þessu salati og brauði.
    Instagram

    Varstu að prófa þessa uppskrift?

    Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

    Facebook

    Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

    Þú finnur mig hér Góður kostur

    Exit mobile version