Site icon GÓÐUR KOSTUR

Vatnsdeigsbollur með hindberjakremi

Vatnsdeigsbollur með hindberjakremi

Hollur og góður kostur á bolludaginn

Vatnsdeigsbollur með hindberjakremi

Recipe rating: N/A
Fjöldi skammta

2

Uppskrift úr einu eggi eru 2 skammtar.

Innihald

  • Vatnsdeigsbollur
  • 50 g kókosolía

  • 1 dl vatn

  • 50 g hveiti

  • 1 meðalstórt egg

  • Örlítið salt

  • Hindberjakrem
  • 100 g sýrður rjómi 10% eða grísk jógúrt léttmál

  • 100 g hindber

  • 10 g fljótandi gæðahunang, ef vill

  • Til skrauts
  • Smá sykurlaus flórsykur frá SUKRIN, ef vill

  • 100 g hindber, bláber eða brómber

Leiðbeiningar

  • Vatnsdeigsbollur
  • Setjið vatn og kókosolíu í pott, hitið að suðu
  • Takið pottinn af hitanum, stráið hveitinu út í pottinn og smá salti
  • Hrærið með sleif þar til deigið losnar frá botninum, leyfið deiginu að kólna aðeins.
  • Setjið egg í hrærivélaskál og bætið deiginu út í. Þeytið saman. Deigið á að vera svolítið seigt í sér.
  • Notið 2 teskeiðar til að setja deigið á bökunarplötu, klædda bökunarpappír. Uppskrift úr einu eggi gefur 4 nokkuð stórar bollur.
  • Bakið við 200° C í 20-30 mínútur, fer eftir ofni og stærðinni á bollunum
  • Hindberjakrem
  • Stappið hindber með gaffli og hrærið saman við sýrðan rjóma eða gríska jógúrt.
  • Smakkið til með hunangi ef þarf.
  • Að lokum
  • Skerið bollurnar í tvennt
  • Setjið hindberjakrem og fersk ber á milli
  • Sigtið sykurlausan flórsykur yfir

Góð ráð

  • Það má bæta við sykurlausri sultu, til að fá enn sætari bollur.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur

Exit mobile version