Uppáhalds morgunmaturinn

Tröllahafraskál með eplum og kanil
Recipe rating: N/A
Fjöldi skammta
1
Fljótlegur, hollur og þægilegur morgunmatur sem fer vel í flesta maga.
Innihald
30 gr gróft haframjöl eða tröllahafrar
2 tsk kanill (Ceylon)
180 ml mjólk að eigin vali, t.d. þín eigin möndlumjólk
1 epli
Leiðbeiningar
- Blandið saman haframjöli og kanil í skál eða krukku með loki ef ætlunin er að taka grautinn með í nesti
- Hellið mjólkinni út á og hrærið saman
- Látið bíða í a.m.k. 30 mínútur en mjög gott að láta bíða yfir nótt í ísskáp
- Skerið epli í hæfilega bita og setjið saman við
Góð ráð
- Mjög sniðugt að taka með sem nesti ef morgunmatur er ekki borðaður heima. Haframjöl, mjólk og kanill er þá sett krukku að kvöldi og geymi í ísskáp yfir nótt. Eplabitum er svo bætt út í að morgni eða rétt áður en borða á grautinn. Að sjálfsögðu er hægt að nota hvaða ávexti sem er, t.d. peru, bláber eða jarðarber.
- Það er mjög gott að henda smá hnetum eða ristuðum kókosflögum yfir grautinn rétt áður en maður borðar hann.
- Það má skipta út hluta af haframjöli og setja chia fræ í staðinn – eða blanda saman!
- Eplin sem ég notaði í grautinn á myndinni eru lífræn “Red Moon” epli. Þau eru örlítið súr en dásamlega góð. Ég einfaldlega elska epli og kaupi alltaf lífræn.
- Ceylon kanill inniheldur miklu minna af efninu kúmarín en hefðbundinn kanill (Cassia). Kúmarín getur verið skaðlegt fyrir lifrina ef þess er neytt í of miklu magni. Ceylon kanill er líka bragðmeiri, betri og oftast meiri gæðavara en hinn hefðbundni kanill (Cassia). Það er því öruggara að skipta alveg yfir í Ceylon kanil, sérstaklega fyrir þá sem borða mikið af kanil.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur
