Site icon GÓÐUR KOSTUR

Skosk fiskisúpa með reyktri ýsu

Skosk fiskisúpa

Hin fræga Cullen Skink súpa

Skosk fiskisúpa með reyktri ýsu

Skosk fiskisúpa með reyktri ýsu

Recipe rating: 5.0 from 2 votes
Servings

3

servings

Innihald

  • 450 g reykt ýsuflök

  • 1 lárviðarlauf

  • 800 ml nýmjólk

  • 30 g smjör

  • 1 laukur

  • 450 g kartöflur

  • 150 ml rjómi

  • Salt

  • Svartur pipar

  • Fersk steinselja

Leiðbeiningar

  • Setjið mjólkina á pönnu eða í stóran pott ásamt lárviðarlaufi.
  • Leggið reykt ýsuflak í mjólkina og hitið rólega að suðu á tæplega miðlungshita.
  • Látið malla í 5–7 mínútur (ekki sjóða kröftuglega).
  • Takið fiskinn upp úr mjólkinni og geymið aðeins.
  • Bræðið smjör í potti á vægum hita.
  • Saxið lauk frekar smátt.
  • Mýkið laukinn á vægum hita þar til hann verður glær og mjúkur.
  • Skrælið kartöflur ef hýðið er ljótt, hafið annars á. Skerið kartöflur í litla teninga.
  • Bætið kartöflubitum út í og hrærið í 1–2 mínútur.
  • Hellið mjólkinni með reykjarbragðinu yfir lauk og kartöflur.
  • Eldið í 10–12 mínútur eða þar til kartöflurnar eru mjúkar.
  • Til að gera súpuna þykkari er gott að stappa hluta af kartöflunum með kartöflustappara eða gaffli.
  • Skerið fiskinn í stóra, fallega bita, fjarlægið bein og roð.
  • Setjið fiskbitana út í súpuna.
  • Látið malla í 3–5 mínútur – ekki hræra mikið svo fiskurinn haldist heillegur.
  • Bætið rjóma út í.
  • Smakkið til með salti og pipar. Reykt ýsa gefur saltbragð svo líklega þarf frekar pipar en salt.
  • Stráið ferskri steinselju eða graslauk yfir.
  • Berið fram með góðu brauði og smjöri.

Góð ráð og fróðleikur

  • Cullen er lítið sjávarþorp á norðausturströnd Skotlands þar sem fiskveiðar og reyking fisks hafa verið lífsviðurværi íbúanna í aldir. Þjóðarsúpa Skotlands, Cullen Skink, á rætur sínar í þessum hefðum. Upphaflega var þetta einföld súpa fátækra bænda og sjómanna, gerð úr því sem til fékkst: reyktum fiski, kartöflum og vatni. Orðið skink kemur úr gamalli kosku og vísaði upphaflega til beina sem notuð voru í soð, en þegar ýsan tók við af nautakjötsbeinum færðist hugtakið yfir á þykkar og matarmiklar súpur. Með tímanum batnaði aðgengi að hráefnum og súpan þróaðist í það sem við þekkjum í dag: þykka, kremkennda súpu þar sem reykt ýsa leikur aðalhlutverkið, kartöflur gefa fyllingu og mjólk, rjómi og smjör mýkja bragðið.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur

Exit mobile version