Veislumatur sem bragð er af

Lambalæri með indversku ívafi
Recipe rating: N/A
Fjöldi skammta
8
Innihald
1 lambalæri með beini (um 2,5 kg)
12 hvítlauksrif
1 msk ólívuolía
- Kryddlögur
50 g engiferrót, rifin
140 g tómatpúrra
1 tsk kanill
300 ml hrein jógúrt
0,5 tsk kardimommuduft
1 tsk cumin
4 msk karrý
1 msk túrmerik
1 msk garam masala
1 tsk kóríander duft
1,5 msk salt
Svartur pipar
2 laukar, smátt skornir
1 eldpipar (chíle-pipar), smátt skorinn
Leiðbeiningar
- Stingið 12 göt á lærið og setjið heil hvítlauksrif í götin. Nuddið lærið með u.þ.b. 1 msk af ólívuolíu.
- Blandið öllu sem á að fara í kryddlöginn.
- Setjið lærið í plastpoka ásamt kryddleginum og látið bíða í ísskáp í u.þ.b. 24 tíma. Passið að kryddlögurinn þeki vel allt lærið.
- Setjið lærið ásamt öllum kryddleginum í ofnpott og lokið ofan á.
- Hægeldið í ofni við 80-90°C í u.þ.b. 6 tíma. Hafið kjöthitamæli í lærinu.
- Þegar lærið er hefur náð 60°C kjarnhita er gott að taka lokið af pottinum og stilla ofninn á 200° C hita.
- Lærið er eldað þannig áfram í u.þ.b. 10-15 mínútur eða þar til það er orðið dökkt, stökkt og kjarnhiti um 65°C.
- Takið kjötið út úr ofninum og leyfið því að bíða í 10-15 mínútur áður en það er skorið og borið fram.
Góð ráð
- Berið fram með góðri sósu, salati, hýðishrísgrjónum og ef til vill Naan brauði.
- KÖLD SÓSA
Raita sósa passar einstaklega vel með þessu ljúffenga læri. - HEIT SÓSA
Ef þú vilt hafa heita sósu þá er afgangurinn af kryddleginum tekinn úr ofnpottinum og settur í pott með 200 g af smjöri. Síðan má bæta við 500 ml matreiðslurjóma. Að lokum má bæta smá rauðvíni út í og smakka til með salti og pipar. Þessi sósa er sjúklega góð en mjög orkurík og flokkast sem veislukostur.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur
