Site icon GÓÐUR KOSTUR

Kjúklingasalat með basilíkusósu

Kjúklingasalat með basilíkusósu

Íslenskt grænmeti og geggjuð græn sósa

Kjúklingasalat með basilíkusósu

Kjúklingasalat með basilíkusósu

Recipe rating: 5.0 from 1 votes
Fjöldi skammta

4

Innihald

  • 500 g kjúklingur (eldaður), t.d. bringa eða læri án skinns.

  • 200 g gott grænt salat t.d. blanda af íssalati og klettasalati

  • 180 g íslenskir pikkoló tómatar

  • 1 paprika

  • 300 g fersk jarðarber

  • 80 g furuhnetur

  • 20 g sesamfræ

  • 100 g fetaostur (hreinn)

  • Salatsósan
  • 40 ml góð ólívuolía

  • 3 rif hvítlaukur

  • 0,5 tsk salt

  • 1 pottur fersk basilíka )blöð og stilkar

  • 2 sítrónur(safi og ysta lagið af berkinum)

  • 20 ml hunang

  • Smá vatn ef þarf

Leiðbeiningar

  • Byrjið á að elda kjúklinginn eða kaupið ókryddaðan tilbúinn kjúkling.
  • Búið til salatsósuna með því að blanda öllu saman í góðum blandara. Mögulega þarf að bæta við smá vatni til að ná að blanda öllu vel saman. Smakkið til með hunangi og salti.
  • Skerið kjúklinginn í litla bita og leggið í hluta af salatsósunni (í a.m.k. 2 klukustundir)
  • Ristið furuhnetur og sesamfræ saman á pönnu. Leyfið hnetum að fræjum að kólna.
  • Skerið grænmeti og jarðarber og blandið vel saman í fallegri skál.
  • Bætið kjúklingnum út í.
  • Skerið fetaostinn í litla bita og bætið út í.
  • Stráið ristuðum furuhnetum og sesamfræjum yfir.
  • Berið fram ásamt afgangnum af salatsósunni.

Góð ráð

  • Það er skemmtilegast að nota íslensk jarðarber og íslenskt grænmeti í þetta sumarlega salat.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur

Exit mobile version