Ekkert hveiti, sellerírrót notuð sem lasagnablöð
Kjúklingalasagna með ferskri basilíku
8
Það tekur smá tíma að elda þennan frábæra rétt en verðlaunin eru góð.
Innihald
- Kjúklingurinn
1 heill kjúklingur
Eldpiparduft (Chíle-pipar)
Salt og pipar
6 hvítlauksrif
- Lasagna blöðin
400 g sellerírót
- Sósan
6 stk vorlaukur
1 chíle-pipar
6 hvítlauksrif
800 g tómatar úr dós
200 g rjómaostur
250 g sýrður rjómi 10%
75 g parmesan ostur, rifinn
25 g fersk basilíka
Salt og pipar
Olía til steikingar
- Samsetningin
Lasagna blöðin (sellerírótin)
500 g kjúklingakjöt, eldað
120 g ferskt spínat
25 g fersk basilíka
Sósan
75 g rifinn ostur
Leiðbeiningar
- Kjúklingurinn, best að byrja á því að elda hann
- Kveikið á ofninum, stillið á 170°C.
- Setjið kjúklinginn í eldfast mót
- Kryddið kjúklinginn vel með salti, pipar og chíle-pipar
- Eldið í ofni þar til kjarnhiti hefur náð meira en 70°C. Tekur um 45-60 mínútur.
- Takið kjúklinginn út og leyfið honum að kólna þannig að þið getið snert hann með höndunum.
- Rífið kjúklinginn niður í litla bita.
- Takið soðið úr eldfasta mótinu og hellið því í pott og hitið upp að suðu.
- Bætið pressuðum hvítlauk út í soðið og leyfið að malla í nokkrar mínútur.
- Hellið soðinu yfir kjúklingabitana og leyfið þessu að bíða í smá stund. Má alveg geyma til næsta dags í ísskáp ef ætlunin er að elda lasagna daginn eftir.
- Lasagna blöðin
- Afhýðið sellerírót, skerið í örþunnar sneiðar og bregðið í sjóðandi vatn.
- Hellið vatninu frá og geymið.
- Sósan
- Saxið vorlauk smátt og mýkið upp úr olíu á pönnu við meðalhita. Laukurinn á ekki að steikjast, bara mýkjast rólega í olíunni.
- Saxið chili-pipar smátt og bætið á pönnuna.
- Pressið hvítlauk eða saxið smátt og bætið á pönnuna.
- Bætið tómötum úr dós, rjómaosti og sýrðum rjóma á pönnuna.
- Bætið rifnum parmesan osti út á pönnuna
- Leyfið þessu að blandast vel og malla í nokkrar mínútur.
- Saxið basiliku smátt og bætið út í sósuna.
- Smakkið og kryddið með salti og pipar
- Samsetningin, lokaskrefin
- Stillið ofninn á 180°C
- Setjið til skiptis í eldfast mót: 1) blöndu af ferskum basilíkublöðum og ferskum spínatblöðum 2) sellerírótarsneiðarnar 3) kjúklinginn 4) sósuna. Það fer eftir stærð fatsins hversu mörg lögin verða.
- Stráið að lokum rifna ostinum yfir og bakið í ofni við 180°C í 20-25 mínútur.
- Takið út úr ofninum þegar osturinn er orðinn fallega bráðinn.
- Berið fram með grænu góðu salati, t.d. salati með jarðarberjum og furuhnetum.
Góð ráð
- Mæli með því að nota alltaf kjöthitamæli þegar verið er að elda kjúkling og annað kjöt. Of eldaður kjúklingur getur orðið þurr.
- Það má nota rjóma eða matreiðslurjóma í staðinn fyrir sýrðan rjóma ef ekki er verið að spá í orkuinnihald og fitu. Það bragðast líka mjög vel.
- Gott að bera fram með rifnum parmesan osti.
- Það má að sjálfsögðu nota venjulegar lasagne plötur í staðinn fyrir sellerírót.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur
