Þetta er sennilega besta frækexið…

Frækex með parmesan osti
Recipe rating: 5.0 from 1 votes
Bökunarplata
1
Þessi uppskrift passar á eina bökunarplötu.
Innihald
150 g fræ að eigin vali, t.d. blanda af sólblómafræjum, sesamfræjum, graskersfræjum, chiafræjum og hörfræjum
0,5 tsk salt
25 g fínt rifinn góður parmesan ostur
130 ml vatn
2 msk olívuolía
1 egg
Leiðbeiningar
- Blandið öllum innihaldsefnum saman í skál.
- Látið bíða í 20 mínútur. Deigið á að vera eins og meðalþykkur grautur.
- Kveikið á ofninum, stillið á 160°C blástur.
- Dreifið deiginu á bökunarplötu með bökunarpappír, eins þunnt og mögulegt er. Mér finnst best að leggja annan bökunarpappír yfir og þrýsta ofan á hann með höndum. Svo er bara að fjarlægja efri pappírinn varlega.
- Bakið í u.þ.b. 10 mínútur, takið þá aðeins út úr ofninum til að marka stærð kexins. Það er best að gera með því að þrýsta stóru hnífsblaðinu ofan í deigið en helst ekki að draga það eftir deginu. Ef þetta er gert er hægt að brjóta kexið auðveldlega þegar það er tilbúið.
- Bakið áfram í 20-30 mínútur í viðbót en fylgist með vel með því parmesanosturinn má alls ekki brenna.
- Látið kólna.
Góð ráð
- Það má nota annars konar ost t.d. sterkan gouda ost.
- Ef þú vilt ekki nota ost þá má nota næringarger í staðinn.
- Þetta frækex er líka mjög gott án osts en þá er gott að hafa 1 tsk af salt í staðinn fyrir hálfa.
- Það má nota hveitikím sem hluta af fræjum, kannski 10-20 g, það þykkir blönduna.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur
