Site icon GÓÐUR KOSTUR

Fiskur í ofni með grænmeti og osti

Fiskur í ofni

Einfaldur en mjög góður fiskréttur

Fiskur í ofni með grænmeti og osti

Fiskur í ofni með grænmeti og osti

Recipe rating: N/A
Fjöldi skammta

1

Innihald

  • 120 g hvítur góður roðflettur og beinhreinsaður fiskur, t.d. ýsa, rauðspretta, þorskur

  • 30 g beikon smurostur

  • 15 g rifinn ostur

  • 15 g majónes

  • 100 g tómatar

  • 100 g paprika

  • Salt og pipar

Leiðbeiningar

  • Hitið ofinn í 180° C
  • Leggið fiskflök í eldfast mót, saltið og piprið
  • Skerið tómata og papriku í sneiðar og leggið yfir fiskinn
  • Blandið saman smurosti og majónesi, setjið yfir fisk og grænmeti
  • Síðast er rifinn ostur settur yfir
  • Bakað í ofni þar til ostur er bráðinn, þó ekki lengur en 20 mínútur til að fiskurinn verði ekki ofeldaður.

Góð ráð

  • Gott að bera fram með soðnu smælki og blaðlauk sem búið er að mýkja vel í olíu á pönnu
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur

Exit mobile version