Site icon GÓÐUR KOSTUR

8 góðar ástæður til að stunda styrktarþjálfun

Styrktarþjálfun

Regluleg styrktarþjálfun hefur margvíslegan ávinning fyrir þig og þína heilsu.

Hér eru 8 góðar ástæður til að stunda styrktarþjálfun.

  1. Þú verður sterkari í leik og starfi.
  2. Þú eykur liðleika og sveigjanleika. Öfugt við það sem margir halda þá getur styrktarþjálfun aukið liðleika og gert þig sveigjanlegri.
  3. Þú eykur grunnbrennslu með auknum vöðvamassa. Þannig getur styrktarþjálfun hjálpað þér að viðhalda heilbrigðri líkamsþyngd.
  4. Þú styrkir beinin. Þyngdarberandi æfingar setja tímabundið álag á beinin þín og senda skilaboð til beinbyggjandi frumna um að gera beinin sterkari. Að hafa sterk bein dregur úr hættu á beinþynningu, beinbrotum og byltum, sérstaklega þegar þú eldist.
  5. Þú styrkir starfsemi hjarta- og æðakerfis. Rannsóknir hafa sýnt að regluleg styrktarþjálfun getur lækkað blóðþrýsting, lækkað slæma kólesterólið og bætt blóðrásina.
  6. Þú bætir blóðsykurstjórnun. Styrktarþjálfun getur dregið úr hættu á að fá sykursýki og getur hjálpað þeim sem eru með sjúkdóminn með blóðsykurstjórnun. Beinagrindavöðvar hjálpa til við að auka insúlínnæmi og þess vegna getur meiri vöðvamassi hjálpað til við að bæta blóðsykurstjórnun.
  7. Þú bætir andlega líðan. Hreyfing hefur almennt góð áhrif á andlega líðan og styrktarþjálfun er engin undantekning. Losun endorfíns á meðan æfingu stendur og eftir æfingu getur dregið úr streitu, kvíða og einkennum þunglyndis. Tilfinningin sem fylgir því að vera sterkari eykur líka sjálfstraust og jákvæðni.
  8. Þú minnkar hættu á meiðslum og ef þú lendir í meiðslum þá mun styrkurinn flýta fyrir bata.

Ef þú stundar ekki styrktarþjálfun í dag þá gæti verið sterkur leikur að byrja á morgun. Finndu styrktarþjálfun við hæfi sem hentar þér og helst þjálfun sem þú hefur líka gaman af. Íþróttakennarar og íþróttaþjálfarar geta gefið góðar leiðbeiningar um val á æfingum og tíðni æfinga.

Exit mobile version