Engifer, sítrónubörkur, kóríander, karrý, garam masala, túrmerik…

Tjúllað kjúklingabaunabuff
Recipe rating: N/A
Fjöldi skammta
1
Baunir
XX
Meðlæti
X
Innihald
200 g soðnar kjúklingabaunir (hægt að nota úr krukku eða dós)
100 g soðnar kartöflur, helst með hýði
0,5 sítróna (bara börkurinn, ysta lagið)
1 sm ferskur engifer, rifinn
0,5 tsk salt
0,5 tsk garam masala
0,5 tsk túrmerik
0,5 tsk karrý
15 g ferskur kóríander
Leiðbeiningar
- Setjið kartöflur og kjúklingabaunir í stóra skál.
- Bætið sítrónuberki, ferskum rifnum engifer,salti og kryddum saman við.
- Saxið kóríander mjög vel og bætið út í.
- Hnoðið með höndunum og blandið öllu vel saman.
- Mótið buff og látið stand í ísskáp í u.þ.b. 30 mínútur.
- Steikið í olíu á pönnu í nokkrar mínútur á hvorri hlið.
Góð ráð
- Gott að bera fram með grófu brauði, tómötum, agúrku, papriku, salati, sýrðum rjóma og lárperumauki.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur
