Site icon GÓÐUR KOSTUR

Róandi heimur gufubaðanna

Gufuböð

Gufuböð bjóða upp á griðarstað í skjóli hita. Þau eru upprunnin í snjónun og kuldanum í Finnlandi fyrir meira en þúsund árum og eiga djúpar rætur í finnskri menningu. Gufuböð má finna víða í heiminum og eru t.d. mikið stunduð á skíðasvæðum í Ölpunum.

Gufuböð eru meira en bara heitur klefi. Þau eru hluti af menningu en margir stunda þau til slökunar og heilsubótar. Innan viðarveggja gufubaðsins er loftið hlýtt og aðlaðandi. Þegar gufa rís upp og umlykur klefann, róar hún hugann og ber hún með sér tilfinningu um endurnærandi hreinleika.

Gufubað er endurnærandi heilsubót

Fyrir flesta er gufubaðið heilsubót. Það er samt gott að ráðfæra sig við heilbrigðisstarfsmann ef þú telur að gufubað gæti mögulega haft slæm áhrif á heilsu þína eða líðan.

Gufubað getur virkað eins og létt æfing fyrir hjartað. Í hitanum hækkar hjartslátturinn og blóðrásin verður betri, líkt og gerist við létta æfingu. Rannsóknir hafa sýnt að regluleg gufuböð geta dregið úr líkum á háum blóðþrýstingi og hjartasjúkdómum. Það er því óhætt að segja að gufubað sé gott fyrir hjartað.

Slökun og streitulosun eru áhrif sem þú finnur strax fyrir. Hitinn hjálpar til við vöðvaslökun, dregur úr spennu og ýtir undir losun endorfína sem láta okkur líða vel.

Regluleg gufuböð styrkja ónæmiskerfið því hitinn örvar framleiðslu hvítu blóðkornanna sem hjálpa til við að berjast gegn sýkingum, s.s. kvefi og flensu.

Við það að svitna í gufubaðinu verður góð hreinsun ýmissa efna sem gott er að losa líkamann við. Það opnast líka svitaholur sem hreinsa húðina og gefa henni meiri ljóma og heilbrigðara útlit.

Það er gott að fara í  gufubað eftir æfingu eða líkamlega áreynslu. Hitinn hjálpar til við að mýkja upp auma vöðva og stífa liði. Gufubað getur veitt verkjastillingu og flýtt fyrir endurheimt.

Margir gufubaðsunnendur segjast sofa betur eftir gufubað. Þetta gæti verið vegna þeirrar slökunar og streitulosunar sem gufubaðið gefur eða vegna þess að líkamshitinn fellur eftir gufubaðið sem hjálpar til við að gefa líkamanum merki um að nú sé komið að svefntíma.

Þó gufuböð sé ekki beint grennandi, þá geta þau óbeint stutt við þyngdartap með því að auka hjartsláttinn, líkt og á léttri æfingu.

Nokkur ráð til að fá sem besta upplifun af gufubaðinu

Fyrir gufubaðið

Áður en þú ferð í gufubað er gott að drekka vel af vatni. Þannig undirbýrð þú líkamann fyrir vökvatap og hann verður betur í stakk búinn að takast á við hærri líkamshita og það vökvatap sem verður þegar þú svitnar. Þannig verður upplifunin þín betri og ávinningurinn meiri. Ef þú nærð ekki að drekka fyrir gufubað eru meiri líkur á að þú finnir fyrir óþægindum s.s. höfuðverk og svima sem getur valdið yfirliðstilfinningu eða jafnvel yfirliði.   

Farðu í sturtu í stutta stund til að skola af þér. Þetta hjálpar til við að halda gufubaðinu hreinu og undirbýr líkamann fyrir hitann.

Í gufubaðinu

Vertu með hreint handklæði með þér til að sitja eða liggja á. Það er góð venja að hafa handklæði undir fótum og rassi, þannig að húðin snerti ekki viðarbekkina í gufubaðinu. Í sumum löndum, t.d. í Austurríki er ætlast til þess að fólk sé ekki í sundfötum í gufubaði. Ástæðan fyrir þessu er sú að sundföt eru talin geta borið bakteríur sem geta mengað umhverfið í gufubaðinu. Eins telja margir að þegar sundfötin hitna þá geti þau gefið frá sér efni sem menga andrúmsloftið. Ef þú ert feiminn við að sýna nekt þína í gufubaðinu þá er lítið mál af hafa með sér 2 hrein handklæði, vefja öðru þeirra utan um þig og hafa hitt undir fótunum.

Í gufubaði er almennt ró og friður og því ekki vel séð að fólk tali hátt eða sé með læti.

Byrjaðu rólega kannski bara í 5-10 mínútur, sérstaklega ef þú ert ekki vön eða vanur gufuböðum. Hlustaðu á líkama þinn, ef þú finnur fyrir svima, miklum hita eða óþægindum, er kominn tími til að fara út. Þegar þú ferð að venjast gufuböðum getur þú kannski verið lengur, svona um 15-20 mínútur.

Það er ekki endilega mælt með því að drekka á meðan þú ert í gufubaði en það er samt mikilvægt fyrir þig að hlusta á líkamann. Ef þér líður ekki vel, finnst þér vera óþægilega heitt eða ef þú ferð að finna fyrir einkennum um vökvaskort, þá er auðvitað gott að fá sér að drekka.

Eftir gufubaðið

Láttu líkamann kólna smám saman undir volgri eða kaldri sturtu. Sumum finnst betra að kæla siga hraðar, t.d. með því að fara í kaldan pott. Sumum finnst gott að kæla bara fæturnar og kæla líkamann þannig niður. Það getur t.d. hentað fyrir þreytta fætur. Finndu út hvað hentar þér.

Eftir gufubaðið er líka mikilvægt að drekka vel til að bæta upp vökvatapið sem varð í gufubaðinu. Það getur verið gott að drekka vatn en líka eitthvað sem bætir upp tap á söltum, s.s. kókosvatn. Mögulega er gott að blanda söltum í vatnið. Að drekka vökva eftir gufubað hjálpar líkamanum líka að kólna rólega niður og aðlagast eðlilegu hitastigi á ný.

Eftir gufubað er svo gott að slaka á og jafna sig áður en þú klæðir þig.

Nokkur ráð til viðbótar

Þú getur endurtekið gufubaðslotuna tvisvar til þrisvar sinnum. Þá er gott að kæla sig á milli og fá sér jafnvel eitthvað að drekka.

Það er ekki mælt með því að drekka áfengi eða koffíndrykki rétt fyrir eða strax eftir gufubað þar sem það ýtir enn frekar undir vökvatap. Það er heldur ekki ráðlagt að borða mikið rétt fyrir gufubað.

Sumir njóta þess að bæta ilmkjarnaolíum eins og eukalyptus í vatnið fyrir endurnærandi ilm, en vertu viss um að þetta sé leyfilegt í gufubaðinu sem þú ferð í.

Exit mobile version