Site icon GÓÐUR KOSTUR

Kjúklingur með hnetum og döðlum

Kjúklingur með hnetum og döðlum

Ljúffengur réttur sem gaman er að bjóða gestum upp á.

Kjúklingur með hnetum og döðlum

Kjúklingur með hnetum og döðlum

Recipe rating: 4.8 from 4 votes
Fjöldi skammta

4

skammtar

Innihald

  • 4 kjúklingabringur

  • 50 g smjör til steikingar

  • 200 g döðlur

  • 150 g kasjúhnetur

  • 2 tsk karrý

  • 500 ml matreiðslurjómi

Leiðbeiningar

  • Saxið döðlur og hnetur gróft
  • Kryddið kjúklingabringur með salti og pipar
  • Hitið ofninn í 170°C
  • Hitið smjör á stórri pönnu
  • Steikið kjúklinginn í smjörinu í stutta stund, bara til að loka kjötinu
  • Takið kjúklinginn af pönnunni og setjið í eldfast fat
  • Setjið döðlur og hnetur á pönnuna og leyfið að malla þar í stutta stund
  • Bætið karrýi á pönnuna
  • Hellið rjómanum á pönnuna og látið malla í smá stund
  • Hellið sósunni yfir kjúklinginn í fatinu
  • Eldið í ofni við 170°C í 30-40 mínútur eða þar til kjúklingabringur hafa náð kjarnhita 70°C

Góð ráð

  • Mæli með því að nota alltaf kjöthitamæli þegar verið er að elda kjúkling og annað kjöt. Of eldaður kjúklingur getur orðið þurr.
  • Berið fram með góðu fersku salati og soðnum hrísgrjónum eða perlubyggi.
  • Sósan er vel sæt með þessu magni af döðlum svo það má alveg minnka magnið af þeim, ef vill.
  • Það má nota kókosmjólk í staðinn fyrir matreiðslurjóma.
  • Ef þú vilt hafa réttinn sterkari má t.d. bæta við rauðum eldpipar eða “red curry paste”.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur

Exit mobile version