Site icon GÓÐUR KOSTUR

Hreinar og heilbrigðar hendur

Hreinar hendur

Fallegustu hendurnar eru ekki þær sem glansa mest – heldur þær sem endurspegla snyrtimennsku, heilbrigði og sjálfsumhyggju.

Að gefa sér stund til að snyrta neglur, bera á naglabönd og hlúa að höndunum er lítil, en mikilvæg, sjálfsumhyggja.

Það getur styrkt sjálfsmyndina að hafa hendur sem líta vel út. En stundum getur það sem virðist snyrtilegt, eins og gervineglur eða gellakk, unnið gegn heilbrigði handanna með því að gera þínar eigin neglur þynnri og brothættari með tímanum. Mikilvægara en útlitið er þó hreinlætið, því sprungur, rifur, langar neglur og naglalakk geta hindrað góða handhreinsun. Bakteríur og sveppir geta lifað sérlega góðu lífi á höndum með gervinöglum eða gellakki. Jafnvel sprittið nær ekki að vinna sitt verk við slíkar aðstæður og handhreinsun verður því ófullnægjandi. Þetta er sérstaklega óheppilegt fyrir fólk sem vinnur með matvæli eða í þjónustu við fólk – s.s. heilbrigðisstarfsfólk, snyrtifræðinga og hárgreiðslufólk.

Það þarf ekki mikið til að hendur verði bæði fallegar og heilbrigðar. Með reglulegri þjölun, naglabandaolíu og smá tíma til að huga að þínum eigin nöglum geturðu viðhaldið náttúrulegri fegurð og styrk. Það er einfalt, róandi, umhverfisvænt – og ódýrt.

Að hlúa að þínum eigin nöglum í stað þess að viðhalda gervi er góður kostur fyrir þig – og góður kostur fyrir umhverfið. Gervineglur og gellakk eru úr plasti og efnum sem brotna ekki niður í náttúrunni. Með því að sleppa þeim tekurðu grænna skref og leggur þitt af mörkum til sjálfbærari fegurðar.

Exit mobile version