Notalegur kvöldmatur við kertaljós

Franskur lambapottréttur með tímían
Recipe rating: 5.0 from 1 votes
Fjöldi skammta
1
Innihald
170 g lambagúllas eða lambalundir
50 g fennel
30 g rauðlaukur
70 g gulrætur
100 g sveppir
Olía til steikingar
20 g tómatpúrra
5 g nautakraftur
200 ml vatn
1 tsk tímían þurrkað
1 tsk kóríanderduft
Salt og pipar
Leiðbeiningar
- Hitið olíu í potti.
- Skerið kjöt í munnbitastærð og steikið í pottinum við rúmlega miðlungshita. Saltið og piprið aðeins.
- Þegar kjötið hefur lokast, má lækka hitann niður í miðlungshita.
- Saxið rauðlauk og fennel frekar smátt, bætið í pottinn og mýkið í smá stund.
- Skerið gulrætur í bita og bætið í pottinn. Mýkið í smá stund.
- Bætið vatni, tómatpúrru, nautakrafti og kryddi í pottinn. Leyfið pottréttinum að malla í allt að klukkustund eða þar til kjötið er orðið mjúkt.
- Skerið sveppi í sneiðar eða bita og bætið í pottinn. Látið malla í nokkrar mínútur í viðbót. Ef sveppirnir eru smáir er óþarfi að skera þá.
- Smakkið til með salti og pipar.
- Gott að bera fram með kartöflu- og sellerírótarstöppu.
Góð ráð
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur
