Site icon GÓÐUR KOSTUR

Frækex með rósmaríni

Frækex

Einfalt og gott

Frækex með rósmarín

Frækex með rósmarín

Recipe rating: N/A
Bökunarplata

1

Innihald

  • 160 g fræ að eigin vali, t.d. blanda af sólblómafræjum, sesamfræjum, graskersfræjum, chiafræjum og hörfræjum

  • 1 tsk salt

  • 1-2 greinar ferskt rósmarín

  • 160 ml vatn

  • 2 msk olívuolía eða repjuolía

Leiðbeiningar

  • Blandið saman fræjum og salti í skál
  • Fjarlægið rósmarínnálarnar af stilkunum
  • Setjið í helming af fræblöndunni og rósmarínnálarnar í matvinnsluvél eða öflugan blandara. Malið þar til þetta verður að mjöli
  • Blandið saman mjölinu og fræblöndunni í skál
  • Bætið vatninu og olíunni í skálina og látið í standa í 20 mínútur
  • Kveikið á ofninum, stillið á 160°C blástur
  • Dreifið deiginu á bökunarplötu með bökunarpappír, eins þunnt og mögulegt er. Mér finnst best að leggja annan bökunarpappír yfir og þrýsta ofan á hann með höndum eða nota kökukefli. Svo er bara að fjarlægja efri pappírinn varlega.
  • Bakið í u.þ.b. 10 mínútur, takið út úr ofninum og skerið í hæfilega bita, t.d. með pizzaskera
  • Bakið áfram í 40-50 mínútur í viðbót
  • Látið kólna

Góð ráð

  • Það er hægt að nota annars konar krydd en ferskt rósmarín, t.d. 1-2 msk kúmen.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur

Exit mobile version